Lýsing
Þessi hársápa er úr nærandi olíum, meðal annars úr laxerolíu til að ná fram djúpnæringu og þykku og mjúku löðri sem bæði hreinsar og verndar hárið þitt. Laxerolía hefur verið notuð í aldaraðir sem náttúruleg hárnæring og næring fyrir hársvörðin. Í sápunni er henni blandað saman við kókoshnetuolíu og ólívuolíu til að framleiða góða og rakagefandi hársápu. Ilmkjarnaolíur úr Lavender og tea tree eru þekktar fyrir bakteríudrepandi eiginleika sína og stuðla að heilbrigðum hárvexti. Hvert stykki er handgert úr; laxerolíu, kókoshnetuolíu, ólívuolíu, Lavender og tea tree ilmkjarnaolíum, vatni og engu öðru.
Athugasemdir
Engar athugasemdir enn. Skrifaðu fyrstu athugasemdina!