Lýsing
Dualit brauðristin á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1952 þegar Max Gort-Barten, stofnandi hins sögufræga fyrirtækis, hannaði nýja 6 sneiða brauðrist fyrir stóreldhús og veitingastaði í Bretlandi. Í dag eru Dualit brauðristar viðurkenndar og rómaðar fyrir einfaldleika sinn og klassískan iðnaðarstíl sem hefur varla breyst í 70 ár. Þær eru allar handsmíðaðar í verksmiðju fyrirtækisins í West Sussex og nafn þess sem setti saman tiltekna brauðrist er grafið í botninn. Best af öllu er svo auðvitað hið fullkomna ristaða brauð, þökk sé ProHeat® elementinu sem er einstaklega þéttriðið. Brauðið er því nánast jafnristað horn í horn, stökkt að utan og mjúkt að innan. Umhverfisábyrgð: hægt er að skipta út og laga alla hluti brauðristarinnar sem endist í lífstíð. 1200 wött · 2 sneiðar · handsmíðað · fágað stál · 28 mm brauðop · mekanískur tímastillir · affrysting · mylsnubakki Hvít / stál · hæð 22 cm · breidd 26 cm · dýpt 21 cm
Athugasemdir
Engar athugasemdir enn. Skrifaðu fyrstu athugasemdina!